18. mars 2018

Bæjarmálafundur 19. mars

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. mars kl. 17:30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 20. mars verða rædd.

Á dagskrá bæjarmálafundarins verða eftirtalin mál til umræðu og kynningar:

Málefni húsnæðislauss fólks
Skjalastefna 
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Skipulagsmál
Stefnuræða formanns skipulagsráðs
Önnur mál

Fundarstjóri verður Þórunn Sif Harðardóttir, varabæjarfulltrúi


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.