18. maí 2014
Bæjarmálafundur 19. maí


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn á kosningaskrifstofunni, Strandgötu 3, mánudaginn 19. maí kl. 20:00. Þetta er síðasti bæjarmálafundurinn á þessu kjörtímabili.
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, fer yfir stöðu bæjarmálanna og þau mál sem liggja fyrir bæjarstjórn á síðasta fundi kjörtímabilsins. Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar fara yfir stöðu mála í þeirra nefndum.
Gunnar Gíslason, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fer yfir stöðu mála í kosningabaráttunni.
Allir velkomnir að mæta og ræða bæjarmálin.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.