16. júní 2017

Bæjarmálafundur 19. júní

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. júní kl. 17:30. Rætt um bæjarmálin, einkum skipulagsmál, en bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa óskað eftir umræðu um miðbæjarskipulagið og málefni Glerárgötu á fundi bæjarstjórnar.

Einnig rætt um málefni fræðsluráðs, hafnarstjórnar, heilbrigðisnefndar NE og velferðarmál.

Þetta verður síðasti bæjarmálafundur fyrir sumarfrí. Næsti fundur verður mánudaginn 4. september nk.

Fundarstjóri: Sigurjón Jóhannesson, varabæjarfulltrúi.

Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta og ræða bæjarmálin.