17. apríl 2021

Bæjarmálafundur 19. apríl

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi og í fjarfundi á Zoom mánudaginn 19. apríl kl. 17:30.

Rætt t.d. um ársreikning Akureyrarbæjar 2020 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), tjaldsvæðisreit, KA-svæðið við Dalsbraut, íbúakosningu um skipulag Oddeyrar og önnur skipulagsmál. 

Í Kaupangi geta aðeins 20 fundarmenn verið á sama tíma og verða þeir að vera með andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga.

Tengill á fundinn


Fundarstjóri verður Lára Halldóra Eiríksdóttir, varabæjarfulltrúi