16. nóvember 2019

Bæjarmálafundur 18. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 18. nóvember kl. 17:30. 

Rætt td um stöðu mála í bæjarráði, vinnu við fjárhagsáætlun 2020-2023, viðauka við fjárhagsáætlun 2019, tillögu að forgangsröðun skóla- og íþróttamannvirkja og skipulagsmál.

Fundarstjóri: Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.