14. október 2022
Bæjarmálafundur 17. október


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn á veitingastaðnum Bryggjunni mánudaginn 17. október kl. 17:30.
Rætt td um skipulagsmál, gjaldskrárbreytingar, framkvæmdaráætlun og leik- og grunnskólamál.
Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður og formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, er gestur fundarins og kynnir áherslur sínar í ritarakjöri Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í næsta mánuði. Rætt um stjórnmál og skólamál.
Fundarstjóri: Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Allir velkomnir - heitt á könnunni.