14. maí 2021
Bæjarmálafundur 17. maí


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 17. maí kl. 19:30 (ath. breyttan fundartíma vegna utankjörfundar í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi).
Rætt t.d. um viðauka við fjárhagsáætlun 2021, starfsáætlun velferðarráðs, deiliskipulagsbreytingu í miðbæ Akureyrar, reglur um úthlutun sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja og ábyrgð vegna lántöku hjá Norðurorku.
Fundarstjóri: Þórhallur Harðarson, varabæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.