14. apríl 2023
Bæjarmálafundur 17. apríl


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn á veitingastaðnum EYR (aðalsal) mánudaginn 17. apríl kl. 17:30.
Rætt td um ársreikning Akureyrarbæjar fyrir árið 2022 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), uppbyggingu á háskólasvæði, reglur Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð og rafræna vöktun, breytingu á samþykkt um Listasafnið, reglur um lokun gatna og nýtt leikskólahúsnæði.
Fundarstjóri: Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Allir velkomnir - heitt á könnunni.