13. október 2017
Bæjarmálafundur 16. október


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í kosningaskrifstofunni í Strandgötu 3 mánudaginn 16. október kl. 17.30. Rætt um málefni AFE og frístundaráðs auk skipulags- og öldrunarmála.
Fundarstjóri: Þórunn Sif Harðardóttir, varabæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða um bæjarmálin.