14. janúar 2017
Bæjarmálafundur 16. janúar


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 16. janúar 2017 kl. 17:30.
Rætt um stefnuumræðu í fræðsluráði og hafnarstjórn, sem og skipulagsmál og breytingar á samþykktum um nefndir og ráð bæjarins en seinni umræða fer nú fram í bæjarstjórn.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.