13. maí 2017

Bæjarmálafundur 15. maí

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 15. maí kl. 17:30.

Rætt um bæjarmálin, t.d. málefni AFE og frístundaráðs, framkvæmdir við listasafnið, skipulagsmál og um brothættar byggðir - stöðu eyjanna.

Fundarstjóri: Þórunn Sif Harðardóttir, varabæjarfulltrúi.

Hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta og ræða bæjarmálin .