11. júní 2021
Bæjarmálafundur 14. júní


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 14. júní kl. 17:30. Þetta verður síðasti bæjarmálafundur fyrir sumarleyfi.
Rætt t.d. um stöðuna í rekstri bæjarsjóðs fyrstu fjóra mánuði ársins, skipulag á Oddeyri eftir niðurstöðu íbúakönnunar, starfsáætlun frístunda- og fræðsluráðs, stjórnkerfisbreytingar hjá Akureyrarbæ, skipulagsmál, reglur um úthlutun lóða, hvítbók um byggðamál og gatnagerðargjöld.
Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Næsti bæjarmálafundur, að loknu sumarleyfi, verður 6. september nk.