10. desember 2021

Bæjarmálafundur 13. desember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 13. desember kl. 17:30.

Rætt t.d. um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar (seinni umræða fer nú fram í bæjarstjórn), uppstokkun í nefndakerfi bæjarins, lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga, skipulagsmál á Oddeyri og í Tónatröð, hjúkrunarheimili, samning við MAk og safnastefnu bæjarins.

Allir velkomnir - tekið er þó mið af sóttvarnarreglum sem gera ráð fyrir 50 manns hámarki, eins metra fjarlægð óskyldra aðila og grímuskyldu.


Fundarstjóri: Þórhallur Harðarson, varabæjarfulltrúi