31. maí 2020

Bæjarmálafundur 1. júní

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 1. júní kl. 17:30. 

Rætt verður td um menntastefnu Akureyrarbæjar, kosningu í embætti bæjarstjórnar, viðauka við fjárhagsáætlun 2020, gjaldskrá bílastæðasjóðs, skipulagsmál, stöðu mála í Lundarskóla og fiskeldi í Eyjafirði.  

Fundarstjóri: Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.