Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram bókun við afgreiðslu fjárhagsáætlunar


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar var samþykkt í bæjarstjórn Akureyrar í gær með 6 atkvæðum meirihlutaflokkanna. Bæjarfulltrúar minnihlutans sátu hjá í atkvæðagreiðslunni. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi bókun við afgreiðsluna:
"Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn getum ekki samþykkt fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun fyrir bæjarsjóð Akureyrar árin 2017-2020. Í áætluninni er gert ráð fyrir því að A-hluti bæjarsjóðs verði rekinn með halla að upphæð kr. 111.095.000 árið 2017. Það er í raun óásættanleg niðurstaða og hefði mátt leggja meiri vinnu í að ná hallalausum rekstri í A-hlutanum.
Þá er í framkvæmdaáætlun ársins og næstu þriggja ára forgangsröðun verkefna sem við getum ekki fallist á. Þar má nefna framkvæmdir við Listasafnið sem við teljum vera úr takti við núverandi stöðu bæjarsjóðs, samgöngumiðstöð sem staðsetja á við Ráðhúsið og þá er gert ráð fyrir þátttöku Akureyrarbæjar í göngu- og hjólastíg að Hrafnagili að upphæð kr. 40.000.000 þegar ólokið er ýmsum mikilvægum framkvæmdum í bænum, auk þess sem ekkert liggur fyrir fast í hendi með kostnað eða þátttöku Vegagerðarinnar í slíkum stíg.
Við höfum lagt áherslu á að dreifa framkvæmdum aðeins meira í takt við líklegan framkvæmdatíma s.s. aðstöðu fyrir Nökkva sem tekið hefur verið tillit til. Þá höfum við lagt áherslu á að gert verði ráð fyrir meiriháttar viðhaldi og breytingum á öldrunarheimilinu Hlíð, sem komið er inn í áætlun árið 2020 en við hefðum viljað fara í 2018. Þá ber að fagna því að lokið verður við framkvæmdir á lóð Naustaskóla, en við höfum áhyggjur af því að 60.000.000 kr. sem eru áætlaðar til framkvæmdanna dugi ekki til.
Töluvert hefur verið rætt um samstarf flokka í bæjarstjórn og vill meirihlutinn halda því fram að samstarf allra flokka sé gott. Það má rétt vera um ýmsa þætti, en samstarf um gerð fjárhagsáætlunar þarf að vera mun meira ef það á að nást samstaða um hana. Þá þarf samstarfið að byggjast á því að allir komi að sama borði áður en ákvarðanir eru teknar. Svo var ekki í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar nú. Það verður þó að taka það fram að samstarfið hefur þó verið meira og betra að sumu leyti nú en áður, en betur má ef duga skal.
Fjárhagsáætlunarferlið hefur ekki verið nógu gott, óskýr ábyrgðarsvið, gögn verið að skila sér seint og illa og tvisvar þurft að fresta umræðu vegna þessa. Þetta þarf að lagfæra og skerpa á ábyrgð í ferlinu sjálfu.
Þá er rétt að benda á það sem betur hefur verið gert nú en áður. Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins höfum á undanförnum árum kallað eftir betri upplýsingum og greiningum við þessa vinnu svo byggja megi ákvarðanir á gögnum.
Nú eru í fyrsta skiptið í mörg ár lagðar fram starfsáætlanir nefnda og deilda þar sem koma fram markmið, magntölur og upplýsingar um þjónustu. Þá er lögð fram heildstæð greinargerð með áætluninni sem gerir alla umræðu um áætlunina markvissari og málefnalegri.
Þessu ber að fagna og skapast nú gott tækifæri til að þróa þessi gögn og tæki áfram. Við lýsum fullum vilja okkar til að koma að þeirri vinnu nú sem fyrr."