21. apríl 2016

Aukakjördæmisþing 21. maí

Aukakjördæmisþing verður haldið í Mývatnssveit laugardaginn 21. maí nk. Fundurinn verður haldinn í Skjólbrekku og hefst kl. 13:00.

Á dagskrá er ákvörðun á aðferð við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 2016. Stjórn kjördæmisráðs mun leggja fram tillögu sína á fundinum.

Þinggjald er 2000 kr. (ath. enginn posi á staðnum).

Ath: Einungis þeir sem eru kjörnir í kjördæmisráð frá sínu félagi eða fulltrúaráði hafa seturétt og atkvæðisrétt á þessu þingi.

Nánari upplýsingar veitir Kristinn Frímann Árnason , formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.