31. júlí 2018

Ásthildur Sturludóttir verður bæjarstjóri á Akureyri

Ásthildur Sturludóttir, fyrrum bæjarstjóri í Vesturbyggð, verður næsti bæjarstjóri á Akureyri. Hún var ráðin úr hópi 16 umsækjenda um embætti bæjarstjóra. Ásthildur verður þrettándi bæjarstjórinn frá því fyrst var ráðið í embættið árið 1919 - önnur konan á bæjarstjórastóli á eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, sem var bæjarstjóri 2007-2009.

Ásthildur er fædd 10. júní 1974, uppalin í Stykkishólmi. Foreldrar hennar eru Sturla Böðvarsson, fyrrum bæjarstjóri í Stykkishólmi, ráðherra og forseti Alþingis, og Hallgerður Gunnarsdóttir, lögfræðingur.

Ásthildur er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MPA-gráðu (Master of Public Administration) í opinberri stjórnsýslu frá PACE University í New York.

Hún starfaði áður sem verkefnisstjóri á rektorsskrifstofu og markaðs- og samskiptasviði Háskóla Íslands. Hún var einnig verkefnisstjóri við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og atvinnuráðgjafi hjá SSV-þróun og ráðgjöf.

Ásthildur var bæjarstjóri í Vesturbyggð 2010-2018. Eiginmaður hennar er Hafþór Gylfi Jónsson frá Patreksfirði. Saman eiga þau dótturina Lilju Sigríði og soninn Daníel, sem Hafþór átti í fyrra hjónabandi.

Ásthildi Sturludóttur er óskað til hamingju með embættið og velgengni í störfum sínum sem bæjarstjóri hér á Akureyri.