Aðalfundur Verkalýðsráðs - Kristinn Karl kjörinn formaður


Aðalfundur Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins var haldinn í Valhöll fimmtudaginn 31. mars sl.
Kristinn Karl Brynjarsson var kjörinn formaður Verkalýðsráðs, Stefán Friðrik Stefánsson 1. varaformaður og Heiðrún Hauksdóttir 2. varaformaður. Auk formanns og varaformanna voru 21 aðrir stjórnarmenn kjörnir í stjórn ráðsins á fundinum.
Aðrir í stjórn eru: Ásgeir Geirsson, Eiður Ævarsson, Elísabet Gísladóttir, Engilbert Gíslason, Grazyna María Okuniewska, Guðrún Sigríður Jósepsdóttir, Gunnar Hnefill Örlygsson, Gunnlaugur Auðunn Ragnarsson, Hafsteinn Númason, Harpa Halldórsdóttir, Heiða B. Þórðardóttir, Heiðar Antonsson, Hilmar Jökull Stefánsson, Ingvar Már Guðnason, Jóel Þór Árnason, Jóhanna Sigríður Halldórsdóttir, Jón Orri Guðjónsson, Jón Ragnar Ríkharðsson, Ragnar Ásmundsson, Reynir Friðriksson og Þorsteinn Gíslason.
Á fundinum voru samþykktar tvær lagabreytingar - annars vegar á 6. grein um að aðalfund ráðsins skuli boða með tveggja vikna fyrirvara í stað fjögurra áður, og hinsvegar á 18. grein um lagabreytingatillögur skuli hafa borist stjórn viku fyrir aðalfund í stað tveggja vikna áður.
Stjórn ráðsins stefnir að öflugu félagsstarfi með haustinu, að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor.