14. febrúar 2018

Aðalfundur Varnar

Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Svava Þ. Hjaltalín var endurkjörin formaður Varnar. Svava hefur setið í stjórn Varnar frá árinu 2011, var varaformaður 2011-2012 og formaður frá 2012.

Auk Svövu voru kjörnar í aðalstjórn: Gerður Ringsted, varaformaður, Heiðrún Ósk Ólafsdóttir, ritari, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Helga Ingólfsdóttir. Í varastjórn voru kjörnar: Íris Ósk Gísladóttir, Hjördís Stefánsdóttir og Emilía Bára Jónsdóttir.


Nýkjörinni stjórn Varnar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.