29. janúar 2015

Aðalfundur Varðar, f.u.s. á Akureyri 6. febrúar

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, verður haldinn í Kaupangi við Mýrarveg föstudaginn 6. febrúar kl. 20:00.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar félagsins til lagabreytinga.

Pizzur og gos verða í boði á fundinum og bjór á eftir fyrir þá sem hafa aldur til. Stefán Friðrik Stefánsson stjórnar laufléttu PubQuiz - tveir í liði saman.

Nýir félagar eru velkomnir.



Stjórn Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri