Aðalfundur Varðar, f.u.s. á Akureyri, og stjórnmálaskóli 12. febrúar


Aðalfundur Varðar, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri fer fram sunnudaginn 12. febrúar kl. 15:30 á EYR Restaurant eða að Stjórnmálaskóla loknum.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Framboð berist í skilaboðum á like síðu Varðar eða til formanns, Kristjáns Blæs Sigurðssonar.
Stjórn Varðar, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri .
Vörður stendur fyrir stjórnmálaskóla milli kl 14:00 og 15:30 á undan aðalfundi.
Þau sem flytja erindi:
Berglind Ósk Guðmundsdóttir - hefur setið á Alþingi frá árinu 2021 og er 6. þingmaður Norðausturkjördæmis. Hún situr í atvinnuveganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál. Berglind Ósk var í stjórn Varðar bæði árin 2015-2016 og frá 2018 til 2021. Í vetur lagði hún fram þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi álykti að heilbrigðisráðherra feli Sjúkratryggingum Íslands að bjóða út rekstur heilsugæslustöðvar á Akureyri.
Vilhjálmur Árnason - ritari Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur hefur setið á Alþingi frá árinu 2013 og er núna varaformaður þingflokks og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Vilhjálmur hefur m.a. barist fyrir bættum samgöngum, auknu vali fólks við töku fæðingar- og foreldraorlofs og sett geðheilsu og almenna velferð barna og ungmenna í forgang.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir - Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún er jafnframt 1. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, fyrrverandi dómsmálaráðherra og fyrrum ritari Sjálfstæðisflokksins. Eftir að hafa verið virk í starfi SUS varð Áslaug yngsti þingmaður sem var kjörinn á þing í Alþingiskosningunum 2016. Áslaug hefur vakið mikla athygli fyrir opnu viðtalstímana þar sem ráðherra býður öll áhugasöm velkomin í stutt, milliliðalaust spjall þar sem tækifæri gefst til að viðra hugmyndir, kynna þær eða koma athugasemdum tengdum málefnum á borði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á framfæri.