4. september 2014

Aðalfundur Varðar, f.u.s. á Akureyri

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Ketill Sigurður Jóelsson var kjörinn formaður Varðar, í stað Jóns Orra Guðjónssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ketill Sigurður var varaformaður Varðar á árunum 2012-2014.

Auk Ketils voru kjörin í aðalstjórn: Ingvar Leví Gunnarsson, varaformaður, Anna Jenný Jóhannsdóttir, ritari, Pálmi Þorgeir Jóhannsson, gjaldkeri, Baldvin Jónsson, Daði Guðvarðarson og Hreinn Haukur Pálsson. Í varastjórn voru kjörin: Edda Ósk Tómasdóttir, Heiðdís Austfjörð Óladóttir og Daníel Sigurður Eðvaldsson.

Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.