6. febrúar 2016

Aðalfundur Varðar

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í gærkvöldi. Pálmi Þorgeir Jóhannsson var endurkjörinn formaður Varðar. Hann hefur gegnt formennsku frá árinu 2015.

Auk Pálma voru kjörin í aðalstjórn: Axel Þórhallsson, Baldvin Jónsson, Hjörvar Blær Guðmundsson, Íris Ósk Gísladóttir, Ketill Sigurður Jóelsson og Melkorka Ýrr Yrsudóttir. Í varastjórn voru kjörin  Ragnar Sigurður Kristjánsson , Unnur Inga Kristinsdóttir og Stefán Jeppesen.


Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.