6. febrúar 2017

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í kvöld. Þórhallur Jónsson var endurkjörinn formaður félagsins. Þórhallur hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2014 og formaður frá 2016.

Auk Þórhalls voru kjörin í aðalstjórn: Anna Rósa Magnúsdóttir, Bjarni Sigurðsson, Harpa Halldórsdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir. Í varastjórn voru kjörin: Rúnar Sigurpálsson, Lára Halldóra Eiríksdóttir, Elías Gunnar Þorbjörnsson, Finnur Sigurgeirsson og Þórarinn Kristjánsson.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar að félagsgjald verði óbreytt, 2.500 kr. á starfsárinu og var stjórn falið að innheimta gjaldið.

 

Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.