20. september 2014

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í dag. Jón Orri Guðjónsson var kjörinn formaður félagsins, í stað Njáls Trausta Friðbertssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Jón Orri var áður formaður Varðar 2012-2014.

Auk Jóns Orra voru kjörin  í aðalstjórn: Elías Gunnar Þorbjörnsson, Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir, Þórhallur Jónsson og Þórunn Sif Harðardóttir. Í varastjórn voru kjörin: Bjarni Sigurðsson, Harpa Halldórsdóttir, Þórarinn Kristjánsson, Rannveig Kr. Brynjólfsdóttir og Finnur Sigurgeirsson.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar að lagabreytingum. 



Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.