15. september 2014

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 23. september

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn í Kaupangi þriðjudaginn 23. september nk. kl. 20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.

Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson munu fjalla um stöðu bæjarmálanna á fundinum.

Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.

Þeir sem vilja gefa kost á sér til stjórnar fulltrúaráðs og setu í kjördæmisráð af hálfu fulltrúaráðs hafi samband við Oktavíu, formann fulltrúaráðs ( oktaviajo@simnet.is ) og Stefán Friðrik, ritara fulltrúaráðs ( stebbifr@simnet.is ).

Lög fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri



F.h. stjórnar fulltrúaráðsins,
Oktavía Jóhannesdóttir, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri