Konur í meirihluta stjórnar Sjálfstæðisfélags Akureyrar


Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi á mánudag. Jóhann Gunnar Kristjánsson var endurkjörinn formaður félagsins. Jóhann Gunnar hefur setið í stjórn frá árinu 2019 og verið formaður frá 2020.
Með Jóhanni Gunnari í stjórn félagsins voru kjörin: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Fannberg Jensen, Hildur Brynjarsdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir. Konur eru því í meirihluta stjórnar í þriðja skiptið. Það gerðist fyrst 2008-2010 og aftur 2016-2017.
Í varastjórn voru kjörin: Íris Ósk Gísladóttir, Bjarni Sigurðsson, Finnur Sigurgeirsson, Valdemar Karl Kristinsson og Þórhallur Jónsson.
Á fundinum voru samþykktar lagabreytingartillögur sem stjórn félagsins lagði fram.
Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.