4. febrúar 2021

Að loknum aðalfundi Málfundafélagsins Sleipnis

Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn í Kaupangi í kvöld. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Sleipnis. Stefán Friðrik hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2006, var ritari félagsins 2006-2008, varaformaður 2010-2011 og formaður frá 2011. Stefán Friðrik hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og var formaður Varðar, f.u.s. 2003-2006.

Auk Stefáns Friðriks voru kjörnir í aðalstjórn: Jón Orri Guðjónsson, Jón Oddgeir Guðmundsson, Karl Ágúst Gunnlaugsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörin: Harpa Halldórsdóttir, Elvar Már Waage Jóhannsson og Davíð Þ. Kristjánsson.


Gestur fundarins var Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi. Í fundarlok fór hún yfir pólitísku stöðuna í bænum, helstu málaflokka og starfið framundan - bæði inn á við og út á við í aðdraganda næstu kosninga að ári. Gagnleg og góð umræða.


Nýkjörinni stjórn Sleipnis er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.