Að loknum aðalfundi Málfundafélagsins Sleipnis


Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn í Kaupangi í kvöld. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Sleipnis. Stefán Friðrik hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2006, var ritari félagsins 2006-2008, varaformaður 2010-2011 og formaður frá 2011. Stefán Friðrik hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og var formaður Varðar, f.u.s. 2003-2006.
Auk Stefáns Friðriks voru kjörnir í aðalstjórn: Jón Orri Guðjónsson, Jón Oddgeir Guðmundsson, Karl Ágúst Gunnlaugsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörin: Harpa Halldórsdóttir, Henning Jóhannesson og Davíð Þ. Kristjánsson.
Í skýrslu stjórnar minntist formaður, Edvards van der Linden, stjórnarmanns í Sleipni, sem lést sl. vor. Edvard sat í stjórn félagsins í tæpan áratug, frá 2011 til dánardags.
Gestur fundarins var Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi. Í fundarlok fór Gunnar yfir pólitísku stöðuna í bænum, helstu málaflokka og starfið framundan - bæði inn á við og út á við í aðdraganda næstu kosninga 2022. Gagnleg og góð umræða.
Nýkjörinni stjórn Sleipnis er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.