6. febrúar 2020
Að loknum aðalfundi í Sjálfstæðisfélagi Akureyrar


Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í kvöld. Jóhann Gunnar Kristjánsson var kjörinn formaður félagsins í stað Önnu Rósu Magnúsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Með Jóhanni Gunnari í stjórn félagsins voru kjörin: Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Fannberg Jensen, Íris Ósk Gísladóttir og Þórhallur Jónsson.
Í varastjórn voru kjörin: Anna Rósa Magnúsdóttir, Bjarni Sigurðsson, Finnur Sigurgeirsson, María Marinósdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir.
Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.