23. september 2014

Að loknum aðalfundi fulltrúaráðs

Oktavía Jóhannesdóttir var endurkjörin formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í kvöld. Oktavía hefur gegnt formennsku í fulltrúaráðinu frá árinu 2011.

Auk Oktavíu voru María H. Marinósdóttir og Sigurjón Jóhannesson kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Jón Orri Guðjónsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Ketill Sigurður Jóelsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin; Þórarinn Kristjánsson, Henning Jóhannesson og Harpa Halldórsdóttir.

Að loknum aðalfundarstörfum fóru bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri; Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson, yfir stöðu bæjarmálanna og svöruðu spurningum fundarmanna.

Á fyrsta fundi stjórnar að loknum aðalfundi var Jón Orri Guðjónsson kjörinn varaformaður, Stefán Friðrik Stefánsson, ritari, og Sigurjón Jóhannesson, gjaldkeri.