Að loknum aðalfundi Málfundafélagsins Sleipnis


Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn í Kaupangi í gærkvöldi. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Sleipnis. Stefán Friðrik hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2006, var ritari félagsins 2006-2008, varaformaður 2010-2011 og formaður frá 2011. Stefán Friðrik hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og var formaður Varðar, f.u.s. 2003-2006.
Auk Stefáns Friðriks voru kjörnir í aðalstjórn: Jón Orri Guðjónsson, Jón Oddgeir Guðmundsson, Karl Ágúst Gunnlaugsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörin: Harpa Halldórsdóttir, Elvar Már Waage Jóhannsson og Davíð Þ. Kristjánsson.
Á fundinum var lífleg og góð umræða um stöðu flokksins jafnt í bænum og á landsvísu, en sérstaklega mikið rætt um væntanlegar sveitarstjórnarkosningar 14. maí nk. og mikilvægi þess að flokkurinn gangi sterkur til kosninga.
Nýkjörinni stjórn Sleipnis er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.