Framboðslisti Sjálfstæðismanna í Akureyrarbæ formlega samþykktur

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri samþykkti í morgun lista flokksins til sveitarstjórnakosninga þann 16. maí næstkomandi.
Á listanum eru 22 einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn sem brenna fyrir því að halda áfram á þeirri vegferð sem Akureyri er á þar sem öll lífsgæði mynda grundvöll til sóknar.
„Við erum spennt fyrir því að halda áfram á þeim góða grunni sem byggður hefur verið á yfirstandandi kjörtímabili og hlökkum til að ganga til kosninga í vor með sterkan og samheldinn lista. Listi okkar Sjálfstæðismanna endurspeglar breiða reynslu, ferskar hugmyndir og skýran vilja til að vinna Akureyri vel. Við erum þakklát fyrir þann meðbyr sem við finnum um þessar mundir og þá hvatningu sem við fáum frá Akureyringum. Fram undan er kraftmikil kosningabarátta þar sem við leggjum áherslu á öflugt atvinnulíf, áframhaldandi uppbyggingu, ábyrga fjármálastjórn og góða þjónustu við íbúa,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir, nýr oddviti flokksins og fyrrum alþingismaður.
Flokkurinn hélt röðunarfund í febrúar þar sem Sjálfstæðismenn kusu um fjögur efstu sætin. Þá bar kjörnefnd flokksins ábyrgð á því að fylla listann að því loknu. Listinn telst nú formlega samþykktur og er hér með birtur:
1. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrum alþingismaður
2. Heimir Örn Árnason, bæjarfulltrúi
3. Arna Rut Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
4. Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar
5. Þorsteinn Kristjánsson, frumkvöðull
6. Kristína Björk Arnórsdóttir, persónuverndarfulltrúi
7. Jóhann Gunnar Kristjánsson, verkefnastjóri
8. Jóhanna Hlín Ragnarsdóttir, hárgreiðslumeistari
9. Freydís Lilja Þormóðsdóttir, nemi
10. Kristinn Frímann Árnason, hafnarvörður
11. Dagný Reykjalín Ragnarsdóttir, grafískur hönnuður
12. Fannar Gíslason, verkfræðingur
13. Elín Birna Gunnlaugsdóttir, nemi
14. Davíð Þ. Kristjánsson, athafnamaður
15. Sara Halldórsdóttir, lögfræðingur
16. Jósavin Heiðmann Arason, húsasmiður
17. Kristín Elva Viðarsdóttir, skólasálfræðingur
18. Ísak Svavarsson, húsasmiður og flugnemi
19. Ólöf Heiða Óskarsdóttir, viðskiptastjóri
20. Þórarinn B. Jónsson, fyrrum bæjarfulltrúi
21. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og fyrrum bæjarfulltrúi
22. Lára Halldóra Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi

