6. janúar 2025
Bjarni Benediktsson hættir í stjórnmálum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum forsætisráðherra, hefur ákveðið að hætta í stjórnmálum og mun því ekki gefa kost á sér í formannskjöri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins á þessu ári.
Bjarni lætur af þingmennsku þegar Alþingi kemur saman síðar í þessum mánuði og mun Jón Gunnarsson taka sæti á Alþingi í stað hans. Bjarni hefur gegnt formennsku í 16 ár, frá landsfundi í marslok 2009 og hefur setið á Alþingi frá árinu 2003, tæp 22 ár.
Bjarni sat í ríkisstjórn samfellt í ellefu og hálft ár, sem fjármálaráðherra 2013-2017, forsætisráðherra janúar til nóvember 2017, fjármálaráðherra að nýju 2017-2023, utanríkisráðherra 2023-2024 og forsætisráðherra að nýju apríl til desember 2024.
Bjarni tilkynnti um ákvörðun sína að loknum þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins eftir hádegið í dag í færslu á facebook.
Stefnt er að því að landsfundur Sjálfstæðisflokksins fari fram í Laugardalshöll 28. febrúar til 2. mars.
Yfirlýsing Bjarna Benediktssonar