14. janúar 2025

Aðalfundur kjördæmisráðs á Húsavík 15. febrúar

Boðað er til aðalfund Kjördæmisráðsins í Norðausturkjördæmi 15. febrúar 2025 í Golfskálanum á Húsavík og hefst fundurinn kl. 11:00.

Dagskrá
10:30 - 11:00 Skráning – boðið er upp á kaffi og te

11:00 - 12:30 Aðalfundur – hefðbundin aðalfundastörf og ávörp.

12:30 - 13:00 Hádegisverður - óskum eftir verð í einn rétt

13:00 - 14:30 Aðalfundur – hefðbundin aðalfundastörf, ávörp og vinnustofa. Sjá nánar ítarlegri dagskrá hér að neðan.

14:30 – 15:00 Kaffihlé

15:20 – 16:00 Aðalfundur – hefðbundin aðalfundastörf og ávörp.

16:00 – áætluð fundarlok

Þinggjald er 5.000 kr. og er ekki posi á staðnum þannig að það þarf að millifæra á kt. 690169-7119, b.nr. 565-26-1795 eða koma með seðla til að greiða þinggjaldið.

Gestir fundarins eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Diljá Mist Einarsdóttir.

Á aðalfundinn eiga seturétt þeir félagar sem kjörnir hafa verið á aðalfundi síns félag og sjálfkjörnir t.d. fyrrum ráðherrar, þingmenn, sveitarstjórnarmenn svo dæmi sé tekið. Hægt er að sjá inn á https://xd.is/minar-sidur/ skráða félagsaðild og hvort að þú eigir rétt á setu á aðalfundinum. Bent er á að félög þurfa að vera gera upp félagsgjöld sín til að félagsmenn hafi atkvæðisrétt á fundinum. Nánari upplýsingar getur Valhöll veitt eða formaður þíns félags.

 
 
 
Málefni vinnustofan „Tökum forystu!“ verður nánar kynnt ca. viku fyrir aðalfundinn. En unnið verður út því efni sem kom fram á síðasta aðalfundi kjördæmisráðsins.

 
 
 
Formaður vill minna formenn félaga innan kjördæmisins að vera búnir að halda aðalfundi tímalega, minnst þrem dögum fyrir aðalfundinn 15. febrúar 2025. Eins að vera búnir að skila inn aðalfundarskýrslu til Valhallar þannig að breytingar fyrir seturétt á aðalfundinum verða búnar að skila sér til stjórnar kjördæmisráðsins í tíma. Þau félög sem ekki ná að skila halda ársfund sinn fyrir þann tíma en hafa haldið aðalfund eftir 1. janúar 2024 þá gildir aðalfundarskýrsla sem skilað var inn til Valhallar eftir þann tíma fyrir seturétt á aðalfundi kjördæmisráðsins.

 
 
 
Um kvöldið verður hittingur sem er opinn öllum Sjálfstæðismönnum og mökum/gestum óháð seturétti á aðalfundi kjördæmisráðsins. Í boði er fordrykkur, kvöldverður og skemmtidagskrá í Golfskálanum á Húsavík. Hefst kvöldið með fordrykk kl. 19:00 og kvöldverður hefst kl. 20:00. Verð á viðburð er 9.900 kr. á manninn og greiðir hver og einn fyrir sig.

F.h. stjórnar kjördæmisráðsins, Þórhallur Harðarson, formaður.

 
 
 
Ítarleg dagskrá aðalfundar kjördæmisráðs er eftirfarandi:

Fundur settur.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla fráfarandi stjórnar.
Reikningar kjördæmisráðsins.
Ákvörðun árgjalds.
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
Lagabreytingar – tvær lagabreytingar liggja fyrir fundinum.
Stjórnarkjör.
Kosning formanns.
Kosning 13 stjórnarmanna.
Kosning 15 varamanna.
Ávarp.
Málefnavinna – Vinnustofa - Tökum forystu!
Kosning í miðstjórn. Kosning í eitt sæti aðalmanns og eitt sæti varamanns.
Ávarp.
Kosning kjörnefndar og varamanna. Kosið um 13 aðila í kjörstjórn fyrir utan sjálfkjörna og þrjá varamenn.
Ávarp.
Kosning fulltrúa í flokksráð skv. 9. gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins. Kosið verður um 10 fulltrúa í ráðið.
Ávarp.
Önnur mál.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram geta sent tölvupóst á formann kjördæmisráðsins á thorhallurhardarson@gmail.com og tilkynnt um áhuga á framboði og í hvaða embætti. Þeir sem eru í embætti eru beðnir um staðfesta ef þeir hyggjast sitja áfram annars er litið svo til að þeir bjóði sig ekki fram.

F.h. stjórnar kjördæmisráðsins
Þórhallur Harðarson, formaður.