20. febrúar 2026
Aðalfundur fulltrúaráðs 24. febrúar - tillaga að framboðslista lögð fram

Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn þriðjudaginn 24. febrúar kl. 20:00 að Geislagötu 5, gengið inn að norðan.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Á fundinum verður einnig lögð fram tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí nk.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningsskil
3. Kjör formanns
4. Kjör stjórnar
5. Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga
6. Kjör fulltrúa í kjördæmisráð
7. Lagabreytingar
8. Tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista
8. Tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista
9. Önnur mál
Seturétt á fundinum hafa þeir sem til þess hafa hlotið kjör á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Framboð skulu send til formanns fulltrúaráðsins á jonthorkristjans@gmail.com.
F.h. stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri
Jón Þór Kristjánsson, starfandi formaður

