Flýtilyklar
Fréttir
Landsbyggðin mótmælir ákvörðun innviðaráðherra og Reykjavíkurborgar
01.05.2023 |
Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í 14 sveitarfélögum hafa í sameiginlegri yfirlýsingu lýst yfir þungum áhyggjum vegna áforma Reykjavíkurborgar og innviðaráðuneytisins um að hefja jarðvegsframkvæmdir í Skerjafirði vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar sem setji framtíðaröryggi landsbyggðanna í uppnám.
Bæjarmálafundur 17. apríl
14.04.2023 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn á veitingastaðnum EYR (aðalsal) mánudaginn 17. apríl kl. 17:30. Rætt td um ársreikning Akureyrarbæjar fyrir árið 2022 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), uppbyggingu á háskólasvæði, reglur Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð og rafræna vöktun, breytingu á samþykkt um Listasafnið, reglur um lokun gatna og nýtt leikskólahúsnæði. Allir velkomnir - heitt á könnunni.
Fundur með Guðlaugi Þór og Njáli Trausta 12. apríl
09.04.2023 |
Sjálfstæðisfélag Akureyrar boðar til fundar á Flugsafninu á Akureyrarflugvelli miðvikudaginn 12.apríl klukkan 17:30.
Gestir fundarins verða Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra og Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi. Allir velkomnir.