Kjördæmisþing á Akureyri 27. september

Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri nk. laugardag, 27. september. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 10:00 með skýrslu fráfarandi stjórnar. Eftir það tekur við hefðbundin dagskrá aðalfundar í samræmi við lög ráðsins, n.t.t. 15. gr. og er eftirfarandi, tímasett:

9:45 – Greiðsla þinggjalda. (ATH. engin posi). Þátttökugjald fulltrúa er 2.500 kr.

10:00 - Skýrsla fráfarandi stjórnar og reikningar kjördæmisráðsins.

10:45 -  Lagabreytingar.

11:00 -  Ákvörðun árgjalds.

11:30 - Matarhlé og aðalfundur KUSNA (kjördæmisráð ungra Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi).

13:00 -  Stjórnarkjör
a. Kosning formanns.
b. Kosning 14 stjórnarmanna.
c. Kosning 15 varamanna.

13:20 -  Kosning kjörnefndar.

13:45 - Kosning til miðstjórnar skv. 23. gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.

14:30 - Kosning fulltrúa í flokksráð skv. 13.gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.

15:00 - Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.

15:15 - Önnur mál

15:30 - Fyrirspurnartími til þingmanna

17:00 - Fundaslit

Eftir aðalfundinn verður haldið á Icelandair Hótel á Akureyri þar sem boðið verður upp á steikarhlaðborð og eftirrétt og síðar um kvöldið munum við efna til fögnuðar með nýrri stjórn kjördæmisráðs og vonandi sem flestum Sjálfstæðismönnum úr kjördæminu.
Verð fyrir kvöldverð á Icelandair Hótel er 5.900 kr.

Gisting
Icelandair Hótel á Akureyri býður fulltrúum aðalfundarins upp á gistingu á tilboði:
Eins manns herbergi með morgunverði 13.900 kr. nóttin.
Tveggja manna herbergi með morgunverði 15.900 kr. nóttin.
Vinsamlegast bókið herbergi í tíma.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook