Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 19. janúar

Boðað er til fundar í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, 19. janúar nk. kl. 20.00. Vegna gildandi samkomutakmarkana verður fundurinn einungis rafrænn og fylgir hlekkur á fundinn með fundarboði í tölvupósti.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri og fengið boð í tölvupósti.

Tilefni fundarins er fyrirhuguð sala á húsnæðinu í Kaupangi en stjórn fulltrúaráðsins samþykkti þann 7. janúar sl. kauptilboð í fasteignina með fyrirvara um samþykki fulltrúaráðsins. Á fundinum verður farið yfir tilboðið og afstöðu stjórnar og tilboðið svo borið upp til samþykktar.

Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins verður gestur á fundinum.


Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook