Flýtilyklar
Bæjarmála-fjarfundur 20. apríl
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í fjarfundi á Zoom mánudaginn 20. apríl kl. 17:00 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 21. apríl verða rædd.
Zoom – ið virkar þannig að zoom slóðin er aðgangurinn inn á fundinn okkar.
· Þið virkið aðganginn með því að virkja slóðina.
· Til að virkja slóðina þá smellið þið á hana og passið að vera í tölvu þar sem er bæði hljóð/míkrófónn og myndavél, og muna að hafa kveikt á hvoru tveggja.
· Þegar þið smellið á slóðina þá spyr tölvan ykkur hvort hún eigi að hlaða niður forritinu (sem sagt zoom) og þið samþykkið það (tekur kannski 1 mín, aldrei meira).
· Þegar tölvan er búin að hlaða niður forritinu birtist grænn takki á skjánum hjá ykkur og þið smellið á hann (græni takkinn þýðir að þið eruð að leyfa bæði hljóð og mynd).
Þá er þetta komið! Það er nóg fyrir ykkur að smella á slóðina um 2-3 mínútum áður en þið komið inni á fundinn (það þarf ekkert að forprófa neitt, enda virkar það ekki þar sem zoom er tímastillt, það opnast bara rétt fyrir fundinn).
Slóðin á fundinn er: https://eu01web.zoom.us/j/63974428274
Á fundinum verður rætt t.d. um ársreikning Akureyrarbæjar 2019 (fyrri umræða fer nú fram í bæjarstjórn), stefnuræðu formanns bæjarráðs, lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga, breytingu á skipuriti Samfélagssviðs, breyting á samþykktum frístundaráðs og svæðisskipulag Eyjafjarðar (Blöndulínu 3 og Hólasandslínu 3).
Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.