Flýtilyklar
Fréttir
Kærar þakkir fyrir stuðninginn
01.06.2018 |
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn í kosningunum um síðustu helgi. Kosningabaráttan einkenndist af gleði, samstöðu og góðum anda. Sjálfstæðisflokkurinn fékk flest atkvæði - við munum leggja okkur fram um að standa undir því trausti sem okkur er sýnt.
Sjálfstæðisflokkinn til forystu
26.05.2018 |
Í dag göngum við að kjörborðinu til að kjósa sveitarstjórnir til næstu fjögurra ára. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, bendir á að flokkurinn bjóði fram í 34 sveitarfélögum um allt land, ýmist einn og sér eða í samstarfi við óháða. Enginn annar stjórnmálaflokkur á Íslandi býður fram jafnmarga framboðslista, í litlum byggðarlögum sem stórum.
Pólitískar ákvarðanir um framkvæmdir
24.05.2018 |
Mikil umræða hefur verið um kostnað við framkvæmdir á vegum bæjarins. Í of mörgum tilvikum hafa pólitískar ákvarðanir stjórnað því hve miklir fjármunir eru áætlaðir til ákveðinna framkvæmda. Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, bendir á að mikilvægt sé að vanda til allra áætlana - við viljum gera betur.
Kosningakaffi og kosningavaka
24.05.2018 |
Við bjóðum í kosningakaffi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á Norðurslóðasetrinu, Strandgötu 53, á kjördegi, 26. maí kl. 14:00-17:00. Allir hjartanlega velkomnir! Kosningavaka verður á Norðurslóðasetrinu frá kl. 21:00 þar til úrslitin liggja fyrir.
Rafvæðum enn frekar stjórnsýslu á Akureyri
23.05.2018 |
Efla þarf rafvæðingu í opinberri stjórnsýslu á Akureyri. Nauðsynlegt er að íbúar geti með rafrænum hætti verið í sambandi við stjórnsýsluna og gegnt sem flestum erindum sínum. Þórhallur Harðarson fer yfir hvernig hægt er að bæta rafræna stjórnsýslu.
Börnin í bænum
23.05.2018 |
Í stefnu Sjálfstæðisflokksins er það eitt af lykilmarkmiðum að öll börn komist í leikskóla við 12 mánaða aldur. Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fer hér yfir stöðu mála og stefnu okkar.
Morgunverðarfundur með frambjóðendum
23.05.2018 |
Morgunverðarfundur á kosningaskrifstofunni okkar, Kaupvangsstræti 1 á 2. hæð, föstudaginn 25. maí frá kl. 08.30-09.30. Komum saman og stillum saman strengi fyrir kjördag. Frambjóðendur verða á svæðinu og spjalla við gesti. Allir velkomnir.