Flýtilyklar
Fréttir
Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 22. nóvember
09.11.2017 |
Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, í Kaupangi, miðvikudaginn 22. nóvember nk. kl. 20:00. Á fundinum verður tekin fyrir tillaga stjórnar fulltrúaráðs um aðferð við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2018. Seturétt á fundinum hafa þeir sem kjörnir hafa verið til þess á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.
Bæjarmálafundur 6. nóvember
03.11.2017 |
Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 6. nóvember nk. kl. 17:30. Þar verður rætt um fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, en fyrri umræða um áætlunina fer nú fram í bæjarstjórn Akureyrar. Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í Norðausturkjördæmi
29.10.2017 |
Sjálfstæðisflokkurinn er áfram stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi að loknum alþingiskosningum. Flokkurinn hlaut 20,3% og tvo menn kjörna.
Kosningakaffi og kosningavaka á Akureyri
27.10.2017 |
Kosningakaffi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður á kosningaskrifstofunni, Strandgötu 3, kl. 13:00 til 17:00 á kjördegi. Kosningavakan verður svo um kvöldið á kosningaskrifstofunni frá kl. 21:00 þar til úrslit liggja að mestu fyrir.
Taktu frambjóðendurna tali
24.10.2017 |
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, og Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, svara spurningum kjósenda á fundi á kosningaskrifstofunni okkar í Strandgötu 3 fimmtudaginn 26. október kl. 20:00. Tökum frambjóðendur tali - ræðum saman um kosningamálin. Allir velkomnir!
Kynning á þingframbjóðendum Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi
23.10.2017 |
Kynning á frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í alþingiskosningum 2017.
Fjölmennur fundur með Bjarna Benediktssyni á Akureyri
22.10.2017 |
Mikið fjölmenni var á hádegisfundi með Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra og formanni Sjálfstæðisflokksins, á kosningaskrifstofu okkar í Strandgötu 3 sl. föstudag. Mikill kraftur í hópnum á lokaspretti kosningabaráttunnar.