Flýtilyklar
Ályktun aðalfundar kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi samþykkti í dag ályktun til stuðnings forystu Sjálfstæðisflokksins og þingmönnum flokksins í kjördæminu.
Hún er eftirfarandi:
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi lýsir yfir fullum stuðningi við formann Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktsson, og varaformann, Ólöfu Nordal. Jafnframt lýsir fundurinn yfir ánægju með þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn sitji áfram í ríkisstjórn og geti þannig lokið þeim brýnu verkefnum sem nú er unnið að fyrir land og þjóð.
Aðalfundur kjördæmisráðsins lýsir yfir fullum stuðningi við þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, sérstaklega Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra og oddvita okkar, og hvetjum þá til áframhaldandi góðra verka.