Sjálfstæðisflokkurinn stærsta aflið í Norðausturkjördæmi

Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari alþingiskosninganna á landvísu. Hér í Norðausturkjördæmi urðum við stærsta aflið með 6.014 atkvæði og 26,5% - hlutum þrjá menn kjörna; Kristján Þór Júlíusson, Njál Trausta Friðbertsson og Valgerði Gunnarsdóttur. Arnbjörg Sveinsdóttir, Elvar Jónsson og Melkorka Ýrr Yrsudóttir verða traustir varaþingmenn fyrir kjördæmið.

Við þökkum þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn sem stærsta aflið í kjördæminu kærlega fyrir stuðninginn. Okkar fólk mun mæta sterkt til leiks í þingstörfunum og til verka í landsmálunum. Þau munu vinna vel fyrir kjördæmið.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook