Njáll Trausti verður varaformaður fjárlaganefndar

Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, var kjörinn 1. varaformaður fjárlaganefndar á fundi Alþingis 2. maí í stað Haraldar Benediktssonar sem hefur látið af þingmennsku og tekið við bæjarstjóraembætti á Akranesi.

Njáll Trausti hættir í utanríkismálanefnd samhliða þessu og tekur Diljá Mist Einarsdóttir við varaformennsku í nefndinni. Hann sat áður í fjárlaganefnd 2017-2020.

Teitur Björn Einarsson nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi tekur sæti Njáls Trausta sem aðalmaður í utanríkismálanefnd, fer í atvinnuveganefnd í stað Haraldar og verður einnig varamaður í fjárlaganefnd.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook