Hádegisverður og gleðskapur fyrir fulltrúa Norðausturkjördæmis á landsfundi

Landsfundarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi koma saman á setningardegi landsfundar, 23. október nk.

Hádegisverður kl. 12:00 í veislusal að Sléttuvegi 15-17 (skammt frá Útvarpshúsinu)
Boðið upp á fiskrétt, kr. 2000. Kristján Þór Júlíusson og Valgerður Gunnarsdóttir flytja stutt ávarp - auk þess verður frambjóðendum úr Norðausturkjördæmi til málefnanefnda gefið færi á að kynna sig fyrir kjördæmafulltrúum.

Gleðskapur kl. 19:00 til 21:00 í veislusal að Sléttuvegi 15-17. 
Boðið upp á kvöldverð - ofnsteikt lambalæri með kryddjurtasoðsósu/bearnaise sósu og meðlæti. Verð kr. 4000 - léttir áfengir drykkir innifaldir í verðinu.

Ath. enginn posi á staðnum

Sjáumst hress á landsfundi

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook