Flýtilyklar
Fulltrúaráð samþykkir tillögu um röðun við val á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri samþykkti tillögu stjórnar um að röðun fari fram við val á sex efstu sætum framboðslista við sveitarstjórnarkosningar vorið 2018 á fundi sínum í Kaupangi í kvöld.
Tillagan var samþykkt með auknum meirihluta, tveimur þriðju atkvæða, í samræmi við reglur Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúaráðið samþykkti að auki tillögu um að tvöfalt fulltrúaráð, aðal- og varamenn, komi saman við valið og það fari fram eigi síðar en laugardaginn 3. febrúar 2018. Kjörnefnd tekur ákvörðun um dagsetningu röðunar innan þess tímaramma.
Á fundinum var kjörnefnd til að sjá um ferlið fram að afgreiðslu framboðslista kjörin. Í henni eiga sæti níu fulltrúar - fjórir frá fulltrúaráði og einn frá hverju sjálfstæðisfélagi.
Fulltrúaráð
Aðalmenn:
Ólafur Jónsson, María Marinósdóttir, Íris Ósk Gísladóttir, Þórhallur Sigtryggsson
Varamenn:
Baldvin Jónsson, Helga Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sveinsdóttir, Karl Ágúst Gunnlaugsson
Málfundafélagið Sleipnir
Aðalmaður: Stefán Friðrik Stefánsson – Varamaður: Ragnar Ásmundsson
Sjálfstæðisfélag Akureyrar
Aðalmaður: Anna Rósa Magnúsdóttir – Varamaður: Finnur Sigurgeirsson
Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri
Aðalmaður: Hjörvar Blær Guðmundsson – Varamaður: Máney Nótt Ingibjargardóttir
Vörn, félag sjálfstæðiskvenna á Akureyri
Aðalmaður: Heiðrún Ósk Ólafsdóttir – Varamaður: Gerður Ringsted
Sjálfstæðisfélag Hríseyjar
Aðalmaður: Narfi Björgvinsson – Varamaður: Kristinn Frímann Árnason