Bókun um Reykjavíkurflugvöll samþykkt í bæjarstjórn

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í dag bókun Njáls Trausta Friðbertssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um málefni Reykjavíkurflugvallar. Átta bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með bókuninni, en þrír, bæjarfulltrúar Samfylkingar og Bjartrar framtíðar, sátu hjá.


Bókunin er svohljóðandi:

Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir áhyggjum af framtíð Reykjavíkurflugvallar í ljósi þeirra alvarlegu stöðu sem blasir við fari svo að Reykjavíkurborg leyfi byggingar á svokölluðu Hlíðarendasvæði án þess að tryggt sé að hægt verði að nýta NA/SV braut (neyðarbraut) flugvallarins.

Bæjarstjórnin skorar á Reykjavíkurborg að endurskoða nú þegar samþykktir sínar um Hlíðarendasvæðið með það að markmiði að tryggt sé að byggðin og neyðarbrautin eigi samleið.
Meirihluti borgarstjórnar hefur með samþykktum sínum á undanförnum mánuðum unnið að því að leggja Reykjavíkurflugvöll af á næstu árum.

Þetta er grafalvarlegt í ljósi þess að Rögnunefndin er enn að störfum og borgarstjórn Reykjavíkur er aðili að henni. Þetta er ekki síður alvarlegt þar sem Reykjavík er höfuðborg landsins þar sem flestar stofnanir landsins eru staðsettar sem eiga að þjóna landinu öllu.

Hlutverk höfuðborgar er víðtækt og mikilvægt og það verða borgarfulltrúar í borgarstjórn allir að skilja og viðurkenna. Reykjavíkurflugvöllur er lífsnauðsynleg tenging landsbyggðanna við höfuðborg sína og því kemur það ekki á óvart að Alþingi láti málið til sín taka, þegar sérhagsmunir ganga fyrir almannahagsmunum.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook