Bæjarstjórn bókar um sjúkraflugið og Reykjavíkurflugvöll

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti samhljóða á fundi sínum í gær bókun Njáls Trausta Friðbertssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, um sjúkraflugið og Reykjavikurflugvöll.

Umræða um málið í bæjarstjórn:



Bókunin er eftirfarandi:

Bæjarstjórn Akureyrar skorar á ríkisstjórn Íslands og borgarstjórn Reykjavíkur að tryggja óskerta starfsemi Reykjavíkurflugvallar og tryggja þar með öryggishagsmuni íbúa landsbyggðanna, a.m.k. þangað til jafngóð eða betri lausn finnst. Það er með öllu ólíðandi að dregið verði úr öryggi sjúklinga og slasaðra sem þurfa að komast með hraði á Landspítalann þar sem staðsett er sérhæfð þjónusta s.s. hjartaþræðingar, heila- og taugaskurðlækningar og vökudeild.


Árið 2015 voru 752 einstaklingar fluttir í sjúkraflugi þar af rúmlega 85% með flugvélum Mýflugs og tæplega 15% með þyrlum Landhelgisgæslunnar.

Því miður er óraunhæft að ætla að í náinni framtíð skapist þær aðstæður í íslenskri heilbrigðisþjónustu að ekki verði þörf á að koma mörgum af erfiðustu tilfellunum sem koma upp á landsbyggðunum á Landspítalann við Hringbraut.

Mikilvægt er að aðgengi íbúa landsbyggðanna að öflugustu heilbrigðisþjónustu landsmanna sé tryggt.


Svæði

Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri  |  Geislagötu 5   |   Ritstjóri Íslendings: Stefán Friðrik Stefánsson  |  XD-AK á facebook  |  XD-NA á facebook