Flýtilyklar
Fréttir
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 29. febrúar
14.02.2024 |
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar 2024 kl 20:00 að Geislagötu 5, gengið inn að norðan. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Umræðufundur með Óla Birni 17. febrúar
14.02.2024 |
Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund í Geislagötu 5 (2. hæð - gengið inn að norðan) laugardaginn 17. febrúar kl. 11:00. Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi og fyrrum þingflokksformaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt almennt um stöðuna í pólitíkinni. Allir velkomnir - heitt á könnunni.
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 9. mars
13.02.2024 |
Boðað er til aðalfundar Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 9. mars 2024 á Múlabergi, Hótel KEA, á Akureyri og hefst fundurinn kl. 11:00. Hér má finna nánari upplýsingar um fundinn.
Aðalfundir Málfundafélagsins Sleipnis og Sjálfstæðisfélags Akureyrar
09.02.2024 |
Aðalfundir Málfundafélagsins Sleipnis og Sjálfstæðisfélags Akureyrar voru haldnir í Geislagötu 5 í gærkvöldi. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Sleipnis og Íris Ósk Gísladóttir var kjörin formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar.
Í krafti stærðar sinnar
07.02.2024 |
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, skrifar um tækifærin sem liggja í sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst sem auka mun gæði og framboð náms og efla byggðahlutverk háskólans í krafti stærðar sinnar.
Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, 15. febrúar
07.02.2024 |
Aðalfundur Varðar, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri fer fram í Geislagötu 5 (2. hæð - gengið inn að norðan) 15. febrúar kl. 21:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, 15. febrúar
06.02.2024 |
Aðalfundur Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, verður haldinn þann 15. febrúar kl. 17:30 í Geislagötu 5, 2 hæð, gengið inn að norðan. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Lagðar verða fram tillögur til lagabreytinga.